DK bókhaldskerfi

Flytjum sjálfvirkt bókanir (reikninga) yfir í DK bókhaldskerfi, þú velur hvaða dag þú vilt stofna reikning í DK en hefbundið er að það gerist á komudegi gestsins. Þú velur hvort bókanir td. frá Booking Airbnb og Expedia verði að reikning í DK á komudegi eða allar bókanir.

Í hádegi á komudegi gestsins bíður fullfærður reikningur í DK bókhaldi með öllum upplýsingum, allt ferlið sjálfvirkt.

Kennitölur ferðaskrifstofa og tilvísunarnúmer bókunar koma sjálfvirkt á DK reikning, allt ferlið sjálfvirkt. Sem og aðrar kennitölum á bókunum, séu viðskiptamenn ekki til eru þeir stofnaðir.

Uppsetning er aðlöguð sér að hverjum notanda og getur bókun (herbergi) raðast í herbergjaflokka eða öll herbergi geta verið sér í DK (hvert herbergja númer með sér vörunúmer). Kennitölur og tilvísanir koma fram á DK reikning. Hugbúnaðurinn stofnar nótu fyrir hvert herbergi (bókun) á komudegi eða þeim degi sem hentar þínum rekstri.

Reikningar geta færst sem greiddir eða ógreiddir og eins hægt að láta greiðslustöðu fylgja bókunarkerfi og merkjast þá greiddir séu þeir með Paid stöðu, eins hægt að velja að nota greiðslustöðu á núlli í bókunarkerfi til að reikningar merkist greiddir.

Fyrir stærri gististaði er boðin viðbót sem sameinar hópa td. frá ferðaskrifstofum og verður bara til einn reikningur í DK í staðin fyrir hvert herbergi, fjöldi herbergja og tilvísum koma fram á DK reikning.

Innifalið í mánaðargjaldi er dagleg samkeyrsla á milli kerfanna ásamt hefbundnu eftirliti (öryggisafritun af færslum) og smærri breytingar og lagfæringar.

Bemar notar API REST/JSON (dkPlus API) tengingu, þessi tenging er mun hentugri en eldri SOAP lausn og kostar mun minna.

 

 

Sjá nánar á dk.is

Til að fá þitt bókunarkerfi samtengt DK bókhaldskerfi vinsamlega hafðu samband, bemar@bemar.is